Mosfellsbær
Störf í boði
Búsetukjarninn Hamrahlíð- Mosfellsbæ
Engin laus störf
Búsetukjarninn Langahlíð
Engin laus störf
Búsetukjarninn Vesturhlíð - Mosfellsbæ
Engin laus störf
Vinnuskóli Mosfellsbæjar
Engin laus störf
Stjórnsýsla Mosfellsbæjar
Bókasafn Mosfellsbæjar
Engin laus störf
Krikaskóli
Engin laus störf
Kvíslarskóli
Engin laus störf
Listaskóli Mosfellsbæjar
Engin laus störf
Leikskólinn Hlaðhamrar
Engin laus störf
Leikskólinn Hlíð
Engin laus störf
Leikskólinn Höfðaberg
Engin laus störf
Leikskólinn Reykjakot
Engin laus störf
Leirvogstunguskóli
Engin laus störf
Leirvogstunguskóli
Engin laus störf
Frístundaklúbburinn Úlfurinn
Engin laus störf
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar
Engin laus störf
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar
Engin laus störf
Þjónustustöð Mosfellsbæjar
Engin laus störf

Deildarstjóri óskast í Kvíslarskóla

Kvíslarskóli leitar að öflugum deildarstjóra.

 Kvíslarskóli í Mosfellsbæ leitar að öflugum deildarstjóra í stjórnendateymi sitt.

Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?  Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi Kvíslarskóla í Mosfellsbæ. Kvíslarskóli er unglingaskóli með 7.-10. bekk sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar.  Um er að ræða 100% stöðu. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2022.   

Deildarstjóri er hluti af stjórnunarteymi skólans. Hann tekur þátt í faglegum ákvörðunum og skipulagi innra starfs skólans. Hann tekur þátt í stefnumótun, gerð skólanámskrár og þróun áætlana, ásamt innra mati. Hann tekur á agamálum og fylgist með líðan nemenda og skólasókn í samvinnu við kennara og foreldra. Deildastjóri situr í nemendaráði og forvarnateymum skólans.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

 

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf kennara með áherslu á grunnskólastig
Framhaldsmenntun í stjórnun æskileg
Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
Hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfileikar nauðsynlegir
Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
Áhugi á starfsþróun og nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði
Vissir þú?
Mosfellsbær byggir þjónustu sína á áhugasömu og hæfu starfsfólki sem hefur tækifæri til að rækta þekkingu sína og færni í jákvæðu starfsumhverfi.
Mannauðsstefnan byggir á fjórum gildum Mosfellsbæjar virðingu, jákvæðni, framsækni og umhyggju sem eru leiðarljós starfsfólks í daglegu starfi.