Störf í boði
Mosfellsbær
Stjórnsýsla Mosfellsbæjar
Engin laus störf
Bókasafn Mosfellsbæjar
Engin laus störf
Helgafellsskóli
Kvíslarskóli
Engin laus störf
Lágafellsskóli
Varmárskóli
Engin laus störf
Listaskóli Mosfellsbæjar
Engin laus störf
Leikskólinn Hlaðhamrar
Leikskólinn Höfðaberg
Leikskólinn Hulduberg
Leikskólinn Reykjakot
Leirvogstunguskóli
Félagsmiðstöðin Ból
Engin laus störf
Frístundaklúbburinn Úlfurinn
Engin laus störf
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar
Engin laus störf
Búsetukjarnar Mosfellsbæ
Engin laus störf
Þjónustustöð Mosfellsbæjar
Engin laus störf
Sumarstörf
Leikskólinn Reykjakot auglýsir eftir leikskólakennara
Leikskólinn Reykjakot auglýsir eftir leikskólakennara til starfa frá 8. ágúst 2023.
Við erum að leita að kennara sem hefur gaman af að syngja, dansa, vera úti í náttúrunni, skapa, setja niður kartöflur og leika sér.
Leikskólinn Reykjakot er staðsettur í afar fallegu umhverfi í Reykjahverfi Mosfellsbæ. Lögð er áhersla á leik barna, málrækt,sköpun og náttúru/umhverfi. Reykjakot er 5 deilda og þar eru 85 börn.
Við skólann starfar matreiðslumaður sem eldar hollan og afar góðan mat.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf kennara æskilegt
Áhugi á starfi með börnum og metnaður til að þróa öflugt skólastarf
Góð færni í mannlegum samskiptum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Vissir þú?
Mosfellsbær byggir þjónustu sína á áhugasömu og hæfu starfsfólki sem hefur tækifæri til að rækta þekkingu sína og færni í jákvæðu starfsumhverfi.
Mannauðsstefnan byggir á fjórum gildum Mosfellsbæjar virðingu, jákvæðni, framsækni og umhyggju sem eru leiðarljós starfsfólks í daglegu starfi.

Um Mosfellsbæ