Einstaklingsstuðningur
VIÐ LEITUM AÐ ÖFLUGUM STARFSMANNI TIL STARFA.
Við leitum að starfsmanni til að styðja einstakling með flóknar þjónustuþarfir við athafnir dagslegs lífs.
Við veitum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram við að styðja einstaklinginn til sjálfshjálpar, samfélagslegrar þátttöku og almennrar virkni.
Einstaklingsstuðningur felst í því að veita einstakling félagsskap með einum eða öðrum hætti, innan sem utan heimilisins. Stuðningurinn er sniðinn að áhugasviði einstaklingsins, þörfum hans og óskum.
Við störfum samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og samkvæmt stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum. Um er að ræða hlutastarf fram á sumar og jafnvel fullt starf í sumar ef það hentar viðkomandi. Starfið er virka daga frá ca kl 12.30-16.00 fram í maí og frá kl 8-16 virka daga í sumar.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.