Útikennari í Varmárskóla
Varmárskóli í Mosfellsbæ óskar eftir útikennara
Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-6. bekk. Skólinn er Uppbyggingarskóli, vinnur með Byrjendalæsi og Læsi fyrir lífið og verið er að hefja innleiðingu á Leiðsagnarnámi. Stutt er í fjölbreytta náttúru og lögð er áhersla á útikennslu. Í öllum árgöngum er mikið samstarf um nám og kennslu.
Í skólanum eru um 410 nemendur í 1.-6. bekk. Skólinn er Uppbyggingarskóli, vinnur með Byrjendalæsi og Læsi fyrir lífið og verið er að hefja innleiðingu á Leiðsagnarnámi. Útikennari í Varmárskóla vinnur með tilteknum árgöngum og aðlagar verkefni þeirra þannig að þau henti til útivinnu. Öll kennslan er úti, alla daga skólaársins. Starfsmannahópurinn er öflugur og samvinna og samhjálp eru einkennandi fyrir samskipti innan hópsins. Okkur vantar kennara sem er tilbúinn til að takast á við fjölbreytt verkefni, vera úti í öllum veðrum og verða partur af þessum góða samstarfshópi. Mögulegt starfshlutfall er á bilinu 60-100%.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.