Sumarstarfsmaður í búsetukjarna
Viltu vera með í að skapa fötluðu fólki tækifæri til að lifa til fulls?
Við í búsetukjarnanum Lönguhlíð í Mosfellsbæ erum að leita eftir öflugum starfsmönnum til liðs við okkur í sumar.
Við veitum íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram um að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni.
Starfsmenn vinna eftir hugmyndafræði þjónandi leiðssagnar sem og þjónustu - og starfsáætlunum. Einnig leggjum við mikið upp úr góðri liðsheild og samveru á staðnum.
Við störfum skv. lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og skv. stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.
Í boði er vaktavinna þar sem unnið er á morgun- og kvöldvöktum, bæði helgar og virka daga. Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitafélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.