Frístundaleiðbeinandi í Lágafellsskóla
Lágafellsskóli óskar eftir frístundaleiðbeinendum
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi? Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar.
Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk.
Um hlutastörf er að ræða en möguleiki er á fullu starfi og tengja starfið við starf stuðningsfulltrúa skólans. Vetrarfrístund frá 24.ágúst - 21.júní kl.13:20 – 16:30.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
