Starfsmaður í búsetukjarna
Viltu vera með í að skapa fötluðu fólki tækifæri til að lifa til fulls?
Við í Lönguhlíð í Mosfellsbæ leitum að öflugum og framsæknum starfsmönnum til liðs við okkur. Við veitum íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram um að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni. Starfsmenn vinna eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar sem og þjónustu - og starfsáætlunum. Einnig leggjum við mikið upp úr góðri liðsheild og samvinnu á staðnum. Við störfum skv.lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr.38/2018 og skv.stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum. Í boði er 40-50% vinna í vaktavinnu þar sem unnin er önnur hver helgi sem og morgun- og kvöldvaktir.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitafélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja er leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.