Sumarafleysingar í búsetukjörnum við Skálahlíð 1-15 í Mos.
Starfsmaður í búsetukjarna - sumarafleysingar.
Viltu vera með í að skapa fötluðu fólki tækifæri til að lifa til fulls?
Við í Skálahlið 1-15 í Mosfellsbæ erum að leita eftir öflugum starfsmönnum til liðs við okkur í sumar. Við veitum íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram um að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni.
Starfsmenn vinna eftir hugmyndafræði þjónandi leiðssagnar sem og þjónustu - og starfsáætlunum. Einnig leggjum við mikið upp úr góðri liðsheild og samveru á staðnum. Við störfum skv lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og skv stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.
Í boði er vaktavinna þar sem unnið er á morgun- og kvöldvöktum, bæði helgar og virka daga. Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitafélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.