Umsjónarkennari í Varmárskóla
Varmárskóli í Mosfellsbæ óskar eftir umsjónarkennrum
Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-6. bekk. Skólinn er Uppbyggingarskóli, vinnur með Byrjendalæsi og Læsi fyrir lífið og verið er að hefja innleiðingu á Leiðsagnarnámi. Stutt er í fjölbreytta náttúru og lögð er áhersla á útikennslu. Í öllum árgöngum er mikið samstarf um nám og kennslu. Starfsmannahópurinn er öflugur og samvinna og samhjálp eru einkennandi fyrir samskipti innan hópsins. Okkur vantar umsjónarkennara sem eru tilbúnir til að takast á við þessi verkefni og verða partur af þessum góða samstarfshópi. Mögulegt starfshlutfall er á bilinu 80-100%.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.