Deildarstjóri í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli leitar að deildarstjóra frá og með haustinu 2023.
Það eru forréttindi að vinna í leikskóla, viltu koma og vera með?
Leitað er eftir kennurum og/eða uppeldismenntuðu fólki.
Í Leirvogstunguskóla eru um 112 börn á 6 deildum. Í skólanum er unnið framsækið og öflugt skólastarf þar sem kærleikurinn og gleðin er höfð að leiðarljósi. Unnið er markvisst eftir kennsluaðferðinni Leikur að læra sem gengur út á að kenna börnum hljóð, stafi, stærðfræði, form og liti í gegnum söngva, leiki og hreyfingu. Leitað er eftir kennurum, uppeldismenntuðu fólki og/eða öðru fólki með reynslu til starfa. Um 100% starfshlutfall er að ræða.
Deildarstjóri ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni, ber jafnframt ábyrgð á og stýrir deildarfundum. Deildarstjóri hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar og tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum. Loks skipuleggur deildarstjóri samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni, s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.