Forstöðumaður í búsetu hjá Mosfellsbæ
Mosfellsbær óskar eftir að ráða forstöðumann til að leiða starf tveggja búsetukjarna. Viðkomandi þarf að búa yfir framsækni og lausnamiðuðu hugarfari. Starfið er tímabundið með möguleika á fastráðningu.
Forstöðumaður ber ábyrgð á rekstri búsetukjarnana, ráðningum starfsfólks og þjálfun þess, innra skipulagi, vaktaskýrslugerð o.fl.
Forstöðumaður vinnur eftir lögum og reglugerðum í þjónustu við fatlað fólk og stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum. Búsetukjarninn veitir íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggur áherslu á að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni. Starfsmenn vinna eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar sem og þjónustu- og starfsáætlunum.
Forstöðumaður leggur sig fram við að skapa öfluga liðsheild sem stuðlar að samræmdum einstaklingsmiðuðum vinnubrögðum til aukningar velferðar fyrir íbúana.
Gert er ráð fyrir að forstöðumaður geti hafið störf í lok febrúar eða eftir samkomulagi.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsfólks í daglegu lífi.