Sumarstarf á Heimili fyrir börn
Heimili fyrir börn í Mosfellsbæ leitar eftir öflugum og framsæknum stuðningsfulltrúa til starfa
Viltu vera með í uppbyggilegu og áhugaverðu starfi með fötluðum börnum
Við veitum íbúum á heimili fyrir börn einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram við að auka víðsýni barnanna með félagslegri virkni.
Helstu verkefni eru að aðstoða börnin við allar athafnir daglegs lífs, stuðla að aukinni færni og sjálfstæði barnanna auk þess að starfa eftir þeim áherslum sem heimilið byggir á útfrá hugmyndafræðinni um þjónandi leiðsögn og Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna.
Mismunandi starfshlutföll eru í boði - gengið er út frá því að starfsmenn vinni eina til tvær helgar í mánuði og einstakar kvöldvaktir á virkum dögum.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum er æskileg
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Góð færni í samvinnu og samskiptum
- Áhugi á starfi með börnum
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
- Hreint sakavottorð
- Aldursskilyrði 20 ára
- Góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 4.apríl
Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum. Nánari upplýsingar um starfið veitir Maja Aradóttir, forstöðumaður heimili fyrir börn í síma 694-6125.
Um sumarstarf er að ræða með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
