Umsjónarkennari óskast á yngsta stig næsta skólaár
Umsjónarkennara vantar á yngsta stig Helgafellsskóla næsta skólaár. Kennarar skólans starfa í teymum innan árganga og því er mikilvægt að sá sem ráðinn verður vilji vinna í teymi og út frá fjölbreyttum kennsluháttum. Mikil áhersla er lögð á góðan starfsanda meðal nemenda og starfsfólks. Leitað er að menntaðarfullum einstaklingum með góða færni í mannlegum samskiptum
Umgjörð skólans er heildstætt skólastarf í leik- og grunnskóla. Í skólanum eru rúmlega 500 nemendur í 1. - 10. bekk og í 4 leikskóladeildum.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2025 Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
"Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð aldri, kyni, uppruna eða fötlun.“
