Starfsmaður í búsetukjarna
VILTU VERA MEÐ Í AÐ SKAPA FÖTLUÐU FÓLKI TÆKIFÆRI TIL AÐ LIFA TIL FULLS?
Við í búsetukjarnanum í Klapparhlíð í Mosfellsbæ leitum eftir öflugu starfsfólki til liðs við okkur.
Við veitum íbúum einstaklingsmiða þjónustu og leggjum okkur fram við að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni.
Starfsfólk vinnur eftir hugmyndafræði "Þjónandi leiðsagnar" sem og þjónustu- og einstaklingsáætlunum. Við leggjum okkur fram við að skapa góða liðsheild.
Við störfum samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og samkvæmt stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.
Auglýst er starf í 30%-90% starfshlutfalli og gengið er út frá því að starfsfólk geti tekið kvöld, helgar og /eða næturvaktir. Frábær vinna með námi.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.